January 5, 2009
Á næsta horni er gistiskýli fyrir útigangsmenn, róna. Þessir blessuðu menn ganga fram hjá húsinu mínu tvisvar á dag, þeir trufla mig ekki neitt. En húsið stendur alveg við gangstéttina, þannig að ég heyri allt sem fer fram hér fyrir utan í götunni. Menntaskóla krakkarnir að röllta í sjoppuna í frímó, mömmur að argast í krökkunum sínum, kærustu pör að rífast á leiðinni heim af barnum og það liggur ekki lágt hjá þeim rómurinn elsku rónunum.
Núna var einn að ganga framhjá syngjandi hástöfum, svo staðnæmdist hann fyrir utan gluggan hjá mér og kláraði lagið, hvort sem það var ætlað mér, eða hann hafi bara verið að belgja sig út af götumyndinni.
Það sem mér þótti fallegast við þetta er lagið sem hann söng “Heims um ból”.
Þessum manni hefur verið hlýtt í hjartanu.
VIÐAUKI: og nú gekk hann aftur framhjá hummandi lagið, mér er næstum hlýtt í hjartanu.
Hugmynd? Rónakórinn, hægt að pannta þá til að koma og syngja fyrir utan gluggana hjá fólki sem er illt í hjartanu. Spurning?
January 4, 2009
Það er langt síðan ég lennti í rökræðum um nýslendinga.
Það er alltaf gaman að fara á háum hælum með varalit í ráðhúsið. Ég veit samt ekki hvaða font ég ætti að nota í exið…
December 31, 2008
Hjá Ósk var þetta hellst:
- Uppgötvaði að pósturinn hafði ákveðið að flytja mig úr landi að mér forspurðri.
- Komst að því að The North Face™ létu undan ofsóknum PETA svo að úlpan “mín” varð ókaupileg.
- Keypti mér HOLGA vél og eina Lomo svo að myndavélarnar mínar urðu sex.
- Krækti mér í portret á 67 km hraða.
- ÍSAFJÖRÐUR.
- Tjáningarfrelsi dó pínulítið.
- Ég prófaði að búa í einbýlishúsi í 108.
- Ræktaði kriddjurtir og jarðarber.
- Fjárfesti í háglans appelsínugulum reiðskjóta, BLIKI.
- Varð eldri.
- Varð Ömmusystir.
- Mætti í partí.
- Fekk verðlaun.
- Eignaðist tvær systurdætur á einu bretti svo sistkynabörnin mín eru orðin 15.
- Bar póst inn í Emstrur á leið minni upp í Strút.
- Lærði að hjóla á pinnahælum.
- Fór í sund.
- Kvaddi Ömmu í síðasta sinn.
- Synnti í sjó í fyrsta skipti, nakin.
- Málaði kvíta hesta á rautt píanó niðri í fjöru.
- Tók til í framtíðardraumunum.
- Lærði að “baka” ostaköku.
- Varð Guðmóðir fallegasta barns norðan Alpafjalla síðan ég var ljóshærð með krullur.
- Eldaði dýrindis kræsingar.
- Flutti heim í 101.
- Varð brjáluð út í ráðamenn og konur þjóðarinnar, BAVÍANAR!
- Átti 6 vikna rimmu við internetið.
- Eignaðist matvinnsluvél, með lítill matvinnsluvél innaní og djúsvél.

December 26, 2008
Búin að troða mig út af ÖLLU! Namm…
Svo lítur ekki út fyrir að slegið verði af á næstunni. Fekk þessa líka forláta matvinnsluvél með öllu, svo mikið öllu að henni fylgir einnig minni matvinnsluvél. Reyndu að toppa það!
Ég fekk gjafir líkt og ég væri enn eithvað krakka skrípi, á þetta ekki að fara minnkandi með aldrinum?
Takk allir
Sem betur fer fekk ég líka uppskriftir að hollum ávaxta og grænmetissöfum, svona til að rétta mig af eftir allt átið. Þessar uppskriftir hafa allar einhvursskonar markmið, lækna ýmsa hluti. Td: hægðatregðu, niðurgang, erfiðra hægða einkenni, þynnku, gigt, slæma sjón, morgun ógleði, afeitrun, megrun, þyngdaraukningu, fyrirtíðarspennu og svo mætti lengi telja.
Jónína Ben nú máttu fara að vara þig að ég fari ekki í samkeppni!!!
December 23, 2008
oskgunnlaugsdottir.com óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári (hné hné hné), með innilegri þökk fyrir samlestur á árinu sem er að líða.
Fh oskgunnlaugsdottir.com

Ósk Gunnlaugsdóttir
Ég rakst á nýlega tilkynningu frá Rafmagnsveitu Reykjavíkur, eru ekki öruglega allir með þetta á ískápnum?

December 22, 2008
Væri nær því sem ég hefði skrifað undir þessa mynd.
Dýrið er bara svo dannað að það skítur ekki fyrir framan myndavélar.

December 16, 2008
Nú fáum við myndir af kettlingum…

Ef það er þá ekki bara fokið nú þegar.
Þessir drulluhalar sem við kusum yfir okkur eru ekki alveg með öllum mjalla. Nú hef ég misst alla trú og ekki var hún nú eithvað til að tíunda fyrir.
Þessar auknu álögur á áfengi tóbak og eldsneyti, jú jú einhver verður að borga lánið. En komm onn að halda því fram að þessar álögur eigi ekki eftir að auka verðbólguna sýnir bara við hverskonar fávisku er að stríða. Þessar álögur hækka verðtrygginguna á lánum beint því áfengi og tóbak eru inn í vísitölufjandanum.
Og (aldrei að byrja setningu á og, bull) að ætla að nota Alþjóðagjaldeyrissjóðs lánið til að verja íslensku krónuna er bara nákvæmlega það sama og að kveikja í dollurunum. Ja nema það þá þurfi að nota peningana í annað, væntanlega þá eithvað óskynsamlegra. (Þú ert í Pollíönuleik ef þú heldur að lánið veriði ósnert).
Ég ætla að gerast völuspá fyrir óskgunnlaugsdóttur.com og spá hallarbiltingu. Blóð mun rennna.
Upp með fallöxina, gapastokkana, heykvíslarnar og kyndlana.
Ég bíð mig fram sem sjálfboðaliða að hreynsa sótið af málverkunum í alþingishúsinu eftir byltinguna.
December 15, 2008
Húrra húrra jólasveinninn kom með internetið í skóinn minn í morgun.
En símanum tókst að tengja símanúmer ókunnugrar konu í skóinn minn í staðinn.
Hresst 