March 30, 2006

Uplysingaöld

Filed under: Uncategorized — oskuskaktus @ 5:56 am

Þetta hugtak hefur fengið nýa merkingu í mínum huga. Ég heldbarasta að það sé of mikið að upplýsingum í gangi, allavega hér á internetinu.
Ég hef alltaf verið með tvo teljara á þessari síðu. Einn sem ég setti upp löngu áður en ég vissi hvað html er og svo annan ósýnilegan sem gefur mér endalausar upplýsingar um traffíkina á síðunni. Þetta hefur svosum verið allt í lagi, ég sé hvar fólk er að koma í gegnum tengla af öðrum síðum og yfir á mína, svoldið bara gaman. Svona “nei hei er Davíð búinn að linka á mig, jei” svo ég taki dæmi. En það er eitt sem ég hef ekki veitt athygli fyrr, það er Keyword Analysis og Recent Keyword Activity og þetta er það sem að hræðir mig. um daginn þá tók ég eftir því að einhver hafði googlað nafniðmitt og komið inn á síðuna, ekki bara einusinni heldur nokkrumsinnum og ég vopnuð ip tölu viðkomandi, komst að því hver hafði verið að googla mig.

Þetta finnst mér vera ég að hafa of mikið af upplýsingum. Maður á ekki að geta komist að því hver er að googla hvað og allsekki að geta komist að því hver er að googla mann sjálfan.

March 16, 2006

Gleði tiðindi

Filed under: Uncategorized — oskuskaktus @ 11:00 am

Húrra húrra herinn burt, ég skal hjálpa þeim að flytja, en hvað er það með að það eina sem sveitafélögum dettur í hug í dag varðandi atvinu eru álver, já húrra búum til fleiri láglauna störf á landsbyggðinni svo sveitungurinn flytji á mölina og fátækir útlendinar flytji til íslands. Hvernig væri að byggja upp störf á landsbyggðinni sem nýta menntað fólk til starfa.
Mannauður er það merkilegasta sem við á þessari litlu eyju lengst útí Atlantshafi getum framleitt. Hvernig væri að menntakefið hvetti fólk til áframhaldandi háskólanáms, þarf að taka til í menntastefnunni samhliða landsbyggðarstefnunni.
Svo úr því ég er að rausa þetta, meiri peninga í kvikmyndasjóð og betri heilsugæslu.

Óskin hefur talað í dag.

March 13, 2006

Nú er fjör

Filed under: Uncategorized — oskuskaktus @ 9:50 am

Júbbí gaman, prófa nýtt alltaf gaman.
Marsedit.

March 12, 2006

Mer leiðist

Filed under: Uncategorized — oskuskaktus @ 7:40 am


You are .jpg You are very colorful.  Sometimes you forget things, or distort the truth.  You like working with pictures more than words.
Which File Extension are You?

You are OS X. You tend to be fashionable and clever despite being a bit transparent.  Now that you've reached some stability you're expecting greater popularity.
Which OS are You?

March 7, 2006

Windowshopping

Filed under: Uncategorized — oskuskaktus @ 12:36 pm

ARRGGGGHHHHH

búin að eiða síðustu 2 klukkustundum í að windowshoppa á ebay, núna á ég algjörlega nýjan ýmindaðan fataskáp, og svo ódýrt líka, andskotinn…

vinna í lottó jebbs jebbs, mig klæjar í ýmyndaða vísakortið mitt…

svo glöð að það er ýmindað, ég væri hræðileg með vísakort jebb jebb hræðileg.

ekki meira ebay í nokkra daga núna

eða allavega þar til seinna í kvöld, já há!

agalegt að vera á pæjunni, því hlýtur að fara að ljúka

March 6, 2006

allover again

Filed under: Uncategorized — oskuskaktus @ 5:55 pm

sprungin í tætlur, þetta á ekki eftir að vera fallegt.

Smaauglysing

Filed under: Uncategorized — oskuskaktus @ 9:59 am

Húshjálp óskast, þarf að hafa unun af því að skúra, þurrka af gluggakistum og ná hundahárum úr fötum. Laun 1 til 2 hrísgrónasekkir á ári.

March 2, 2006

Same old same old

Filed under: Uncategorized — oskuskaktus @ 4:44 am

And then again she eagerly threw herself into the paths of unsuitable men