May 16, 2007
að taka myndir af Au-pair stúlkunni með mottuna góðu.
Ég nauðaði í honum að halda dauða kettinum á efrivörinni fram yfir páska mér til persóulegrar skemmtunar, en ég gat grafið þetta út úr nokkrum myndum sem teknar voru af stúlkunni þar sem við erum að leggja í hann norður? vestur? æ, á Ísafjörð.

Sumir myndu kanski kalla mig hrekkjusvín.
Ég persónulega kalla þetta svínslegaeinlægni.
Er líklegast kvikidið sem fær að deila með mér íbúðar afsökuninni sem ég býí.
Hann gerir sér greinfyrir því að ég fíla ekki að vera kona með kúk í poka, og hefur þessvegna reiknað út fjarlægðir á milli ruslatunnana í daglegum rúntum okkar um miðborgina.
Hann hægir einungis á sér þar sem er mögulega lengst í næstu ruslatunnu svo hann njóti þess nú sem lengst að sjá mig engjast yfir því að vera kona með kúk í poka.
Þetta er illa innrættur hundur.

Hér sjáið þið illhyndið uppmálað.
May 14, 2007
…ég verð að fara og ná í vinnu.
Oj ég var svo fullorðin um helgina, svo fullorðin að mér fannst ég verða að krassa á ljósastaura til þess að stemma stigum.
Ég skipti um tvær bleyjur og gaf pela og ruggaði og stakk upp í snuði…
Nú er ég búin að láta sauma fyrir hjá mér, vitiði hvað það þarf að gefa svona oft að borða og á nóttunni líka. Svo er þetta svo ósköp lítið að maður myndi halda að einusinni í viku væri nóg, eins og krókódílarnir.
Mig vantar fjárfesta og vinnuafl, ég fekk nefnilega stórkostlega hugmynd.
Hunda róló hjá vesturbæjarlauginni, það væri svo sniðugt.

May 7, 2007
Í morgunblaðinu í gær (hvort það var sunnudagsmogginn eða blað fyrr úr vikunni veit ég ekkert um) las ég að plötusala hafi aukist um 100.000 eintök á einhverju tímabili. í sömugrein kom fram að á íslandi seljast tæplega 900.000 plötustykki á ári sem gera nálægt þremur stykkjum á haus á ári.
Ég kaupi árskammtinn minn af plötum að meðaltali 5 sinnum á ári og þá er ég ekki að telja með vínil kaup og verslunarleiðangra erlendis.
Ef ég bæti svo við efni sem ég fæ í láni í gegnum internetið. Get ég klárlega komist að þeirri niðustöðu að ég er óhófsmanneskja í neyslu tónlistar.
Ætli það séu úrræði á vogi fyrir fólk eins og mig eða þarf ég að leita til Gunnars í Krossinum?