Á myndinni má sjá:
- Klettasalat í potti röð lóðrétt vinstra megin
- Basiliku í potti í röð lóðrétt í miðið
- Spínat í potti í röð lóðrétt hægra megin

Á myndinni má sjá:

Á laugardaginn var haldið HattaPartý#1 á Framnesveginum, gestgjafinn Halla bauð upp á snittur og Grand Mimosas sem var frábært nema eggaldin snitturnar, hvað er það? Fjörið byrjaði strax uppúr úrslitum söngvakeppni evrópska sjónvarpsstöðva og blásið var til alvöru keppni kvöldsins, keppnin um besta dressið. Það var margt mjög líklegt til sigurs og má þar nefna: KB-BANKA-tehettuna, spandex buxurnar, ástands píuna, stjörnubarminn, dragdrotninguna sem var í svo rauðu að það myndi sprengja alla broadcast-standarda og svo mætti lengi telja. En ótvíræður sigurvegari kvöldsins með 50% greiddra atkvæða var barða leikstjarnan með kókaínfíknina.
Við sjáum mynd af verðlaunum.

Er sko að safna.
Síðast liðinn laugardag, 17. Maí (þjóðhátíðardag Norðmanna, hæ hí og jibbí!) kom lítil prinsessa í heiminn. Aðeins á undan áætlun en það er bara góðs viti, kjarna kona þar fædd, kemur undan Arnleifi Margrétu systurdóttur minni (AKA nr.2).
En þar með er líf mitt markað, ég ný orðin 29, enn langt í 30, er orðin Ömmusystir. Þann titil ber að heiðra með púrtvíni og konfekti. Þetta heimtir jú á fjárútlát og ekki veit ég hvort á að koma fyrst, sængurgjöfin eða sælgætisskálin, því allir vita jú að þær konur sem bera einhvurskonar Ömmutitil þurfa að hafa eithvað til að bera, eins og til dæmis forláta sælgætisskál með einkennis salgæti Ömmutitils viðkomandi.
Nú þarf bara að gera sjónvarpsátt þar sem sælgætistegundir keppast um að verða einkennis Ömmutitils sælgætið mitt. Ætla ekki allir að sitja límdir við kassann?
En þessi gleði tíðindi mynna á að nr.14 og nr.15 eru rétt handan við hornið, í daglegu tali líklegast kallaðar/kallaðir/kölluð tvíburi A og B. Ég er nefnilega rík kona. Á í dag 13 systkynabörn og með nr.14 og nr.15 þá mun ég bera sömu hlýju til nr.16 (Ósk!) sem mun vellta undan henni Huldu Björgu í haust.
Ósk er mjög gott nafn á bæði stráka og stelpur, svo nú vonast ég til að litla prinsennan, nr.14/nr.15 og svo nr.16 muni öll/allar bera með stolti nafnið Ósk.
Er ég nokkuð að biðja um of mikið?
En hamingju ÓSKir til nýbökuðuforeldrana fyrir austan fjall. Megi lífið vera ykkur sem kvolpsfeldur.
Sko að er eithvað að gerast í einum pottinum.
Myndin sýnir Klettasalats pottinn á degi 2 og degi 3.
Þegar nikótín fíkillinn ég hafði brennt alt úr pakkanum varð ekki ferða bundist og við illhyndið örkum af stað í átt að næsta illa lýsta götuhorni í leit að tóbaksala. Þegar við komum niður á Sogaveginn (ca 15m) var okkur litið til beggja átta og í öfuga átt við dýrið varð mér starsýnt á girnilegt blikkandi ljósaskilti, í um 50m fjarlægð, sem ég gat á engan hátt skilið öðruvísi en “Hér er bólugrafinn unglingur að selja tóbak”. Ég fekk dýrið ofan af þeirri hugmynd að ganga til liðs við Votta Jehova og leið okkar lá eins beint og hratt og auðið var að GRENSÁS VIDEO skiltinu.
Mér var svo mál að kaupa sígarettur að það var ekki fyrr en að tiltölulega lítið bólugrafni unglingurinn var búinn að hlusta á mig afþakka afrit af viðskiptunum, að ég leit í kringum mig og sá ógrynnin öll af girnilegum DVD hulstrum, fullt af cölt og ekkert meinstrím, ef að undan er skilið hulstrið af Double DVD special edition af hómóerótíkinni 300.
Þarna mun ég stofna viðskiptareikning við fyrsta tækifæri (lesist, búin með HÆÐINA á fimmtudag).
Gleði gleði!

Ég er búin að gera óhugsanlegan hlut, ég sáði fræum í potta!
Nú er ég farin að rækta plöntur til að drepa. En sjáum til kannski man ég eftir að vökva þetta nógu oft svo það spretti eithvað í þessum pottum. Kannski sprettur Basilika, spínat, klettasalat, einhverskonar piparávöxtur og paprikur.
Ég get allavegana látið mig dreyma.

Ég vaknaði hress klukkan 08:00 í morgun, furðaði mig á því að vekjaraklukkan færi ekki í gang. Svo gekk morguninn bara svona eðlilega fyrir sig, skrúbba tennur og annan skít, hlusta á eina plötu eða svo og drekka kaffi. Pakkaði niður í tösku og svo hjólakörfu, dró Blikann út úr bílskúrnum og hjólaði svo glöð í vinnuna með Belle & Sebastian syngjandi í eyrunum og sólgleraugu á trýninu til að fá ekki flugur í augun.
Fannst skrítið að það væri ekki opið stúdíómegin en það var ekk fyrr en ég þurfti að taka þjófavarnarkerfið af að ég uppgötvaði þessi grundvallar mistök sem ég var búin að gera. Í dag er nefnilega laugardagur og ég ætla barasta ekkert að vinna í dag.
Nú er bara að nýta tíman til merkra verka.
Þetta vídjo er tengist þessari færslu bara ekki neitt, en kveikir í klippinördinu í mér.
Njótið.
Ok ok 101 ekki fara að anda í poka, ég kem aftur.
Í dag hjólaði ég heim úr vinnunni, Gulli Gullskódi er farinn aftur á leiguna og bíður nú lífsreyndur eftir að fá að segja þýskum túristum frægðar sögur af sjálfum sér og stjörnunum. Vegna veðurs ákvað ég að fara ekki beinustuleið heldur fara í útsýnistúr um nýjahverfið. Það er gróðið og með stígum sem þarfnast lagfæringar. Sjarmerandi. Bara ekki alveg minn stíll.
Bliki stóð sig eins og hetja, kom ekki að mér ó vari því hann er splúnku nýr og búinn að standa spenntur í andyrinu á Laugarveginum og breggða fyrir mig dekkinu undanfarna daga í veikri von um að fá að sýna sig og sanna. Hann var ekki þó eins gæsilegur og á afmælisdaginn minn. Ekki bara af því það var afmælisdagurinn minn, heldur af því að ég hjólaði honum upp Bankastrætið klædd ofurhetjuskykkjuni minni í hífandi roki með mysterious woman sólgleraugun á trýninu. Ég verð að gera það aftur og vera þá búin að láta alla hellstu fjölmiðla vita af ferðum okkar Blika, því slík fegurð og glans er vart finnandi í Bankastrætinu svona dags daglega.
Hann sagði mér það í dag, hvað hann heitir. Bliki það er fallegt nafn á glansandi appelsínugulu reiðhjóli.
Myndbyrting síðar.
Þeir sem ekki geta beðið, geta séð mynd af samskonar reiðhjóli með því að músa þennan texta.
Að liggja andvaka…
Samsund, er til svoleiðis hópur á íslandi?
Er bara að telja klukkustundirnar þar til skrifstofa sundfélagsins Ægis opnar svo forvitni minni verði svalað.
Takið sérstaklega eftir sóló kaflanum í lokin.
Í einhverju bríeríi drakk ég 1 1/2 líter af mjólk rétt í þessu.
Nú get ég ekki sofnað fyrir gutlinu í maganum á mér!