July 21, 2008

Om nom nom

Filed under: amstur dagsins — oskuskaktus @ 7:21 pm

Í kvöldmatinn var þetta hellst, allt það grænmeti sem ekki var farið að sýna sjálfstæðahugsun í ískápnum steikt á pönu og svo eggjablanda hrærð útí. 

Ég tók myndir en JPGlögreglan gerði þær upptækar og eyddiþeim sökum meintrar ógleði væntanlegra áhorfenda.

Í staðinn sjáum við mynd af vaðhundi.

vaðhundur

July 19, 2008

Stundum opnast fyrir manni heimurinn

Filed under: tilkynningar — oskuskaktus @ 2:37 am

Að hjóla í rauðum hóruskóm, 5cm pinnahælum er ekkert grín. Ég ætti aðð selja einhverjum líkamsræktarfrömuðinum þessa stórgóðu innanlærisvöðva æfingu. Sé fyrirmér appelsínugul vöðvafjöllin í spinning á pinnahælum. Fallegt.

Svo eru ekki allir bankastrákar hrút leiðinlegir, sumir jafnvelsemmtilegir, ef þeir væru ekki svona hrillilega komplexaðir. Láttu mig þá hafa hassreykjandi listamanninn frekar. En jú ef maður kann tvö til þrjú bánkaterm þá er hægt að segja marga brandara. *SIGH*

Æ hvað ég nenni þessu ekki.

“Sjáðu Ósk, þessi er voða fínn.” Endar yfirleitt í. “Farðu í rass og rófu.”

July 18, 2008

Það gaf mér einhver bíl í nótt

Filed under: amstur dagsins, uppgötvanir — oskuskaktus @ 7:12 am

Þegar maður vaknar á morgnana og það er bíll í bílastæðinu manns má maður þá ekki eiga hann?

Annars gerði ég aðra skemmtilega uppgötvun svona í morgunsárið, jarðaberin mín eru að verða ætlileg, sum allavegana.

Nú þarf ég að fara að læsa gróðurhúsinu mínu.

rauttish jarðaber

July 15, 2008

Fallegur staður á internetinu

Filed under: amstur dagsins, uppgötvanir — oskuskaktus @ 9:02 pm

Hér

Samt einhvernveginn fær þetta vænisýkina til að skríða upp eftir bakinu á mér.

July 12, 2008

Eitthvað vantar uppá kindinguna í neðra núna.

Filed under: amstur dagsins, tilkynningar — oskuskaktus @ 5:23 pm

Ég er að lesa bók! Það eru engar myndir! Þetta er ekki fræðibók um myndlist, ljósmyndun eða kvikmyndir. Þetta er ekki ævisaga. Þetta er bók, svona bók bók, skáldskapur!

590 blaðsíður! mínus 6, ég er búin með 14. Ég las formálann :O

Kannski verð ég duglegri að blogga um lesturinn en blómin mín.

Klettasalatið og spínatið drapst. Basilikan sprettur og sprettur, jarðaberin eru að verða hvít og ég vænti Chilly ávaxta í september.

July 10, 2008

Innrásir

Filed under: amstur dagsins, ferðalög — oskuskaktus @ 8:15 pm

Það er með eindæmum hvað ég er alltaf að lenda í innrásum á heimilið mitt.

Ef það eru ekki viðurstyggðar drápsflugur þá eru það fremur huggulegir persneskir kettir.

Þegar ég kom af fjöllum beið mín óvæntur gestur, fallegur hlussustór kisi sem vildi ekkert annað en ást. Hann álpaðist á réttan stað vesalingurinn, því hér er nóg af ást og standandi hlaðborð af hundamat og öðru góðgæti. En ég gat bara ekki boðið honum gistingu greiinu, ég þarf nefnilega ekkert fleiri gæludýr.

Þegar ég tók hann upp til að grýta honum á dyr byrjaði hann að mala samstundis, svo blíður og fallegur, það er að segja ef ég hefði greitt honum. Illhyndið varð skiljanlega uppnumið af þessum óboðna gesti og spurði blíðlega hvort hann mætti ekki bara vera og leika í smá stund. Ég hélt nú ekki og gerði sem best ég gat að klóra ekki grei skinninu þar sem ég stóð með það í höndunum. 

Þegar útidyrnar höfðuverið opnaðar laggði ég kattarófétið frá mér og bjóst við að hann ryki út um dyrnar, en nei, hann þaut upp á aðra hæð og kom sér fyrir í glugga eins langt frá og hann gat. Þegar ég tók hann upp aftur fann ég vernig hann reyndi sem best hann gat að nýta sér snertinguna, nudda kjálkanum utan í puttanan á mér eins og ég væri að strúka honum. Hjartað mitt brast, en þar sem ég er harðbrjósta villidýr grýtti ég vesalings dýrinu á dyr og langaði að deyja.

Ég verð bara að muna að það er ekki ég sem er ódæmið í þessu máli. Heldur fólkið sem vísaði dýrinu á dyr.

Þessu mjái mun ég aldrey gleyma. Kettir eru ekki einnota.

July 4, 2008

Upp upp á fjöll með póst.

Filed under: ferðalög, tilkynningar — oskuskaktus @ 1:29 pm

Ég ætla að gerast póstburðarkona og fara með póstsendingu inn í Emstrur á eftir. Svo svona úr því ég verð komin þangað þá verður tilvalið að eiða helginni inn í Strút á Mælifellssandi.

Eins gott að laugin verði passleg því mínar flauelisklaufir þurfa að komast í náttúrulegt bað.

Mælifellssandur

July 2, 2008

Opið bréf til konu.

Filed under: opið bréf — oskuskaktus @ 9:46 pm

Kæra kona.

Þú sem áttir tíma í nuddi hjá indverska nuddaranum í Baðhúsinu klukkan 14:00 í dag. Buxurnar þínar eru gegnsæar og vinkona þín er kannski ekki eins góð og þú heldur.

Ég fylgdist með henni uppgötva á svipuðum tíma og ég í búningsklefanum að buxurnar þínar eru gegnsæar. Hún sagði ekki neitt og ég bara nennti ekki að skipta mér af. Kannski þykir einhverjum það flott og jafnvel kynuppörvandi. En ég ræð þér frá því að ganga í bleikum brókum á sama tíma og þessum buxum.

Svo væri jafnvel sniðugt að klippa þvottamerkið aftan úr þeim, að vera með kvítt skott sem segir þvoist á 40 og má fara í þurrkara er ekki kynuppörvandi nema fyrir allra mestu perverta bæarinns. Jafnvel ég þekki ekki slíkan.

Með allra bestu óskum með velgengni í framtíðar buxnakaupum.

Kær kveðja Ósk.

Get ekki sofnað!

Filed under: amstur dagsins, klúður — oskuskaktus @ 12:30 am

Mér þykir ég sjálf svo ótrúlega sniðug að ég barasta get ekki farið að sofa. Það ískrar og skríkir í mér af sniðug heitum.

Þetta er alveg hræðilegt ástand.

Svona jafn hrikalegt ástand og þegar okkur Þórdísi datt í hug að úða yfir okkur ilmvatninu hennar Jónínu Ben. Engin leið að flýja það.