September 24, 2008

Lati snati boníta

Filed under: amstur dagsins, ferðalög, tilkynningar — oskuskaktus @ 9:29 pm

3 stjörnur, 3 réttir, einfættur strippari. Iz nice, srsly!

September 12, 2008

Skrík myndir

Filed under: tilkynningar — oskuskaktus @ 6:19 pm

Váááááá hvað hún er falleg. (og Óskarleg ;) )

September 10, 2008

Fjórða stúlkan komin

Filed under: tilkynningar — oskuskaktus @ 10:07 pm

Í dag eignaðist ég enn eina splúnkufína frænku. Það gera 4 stúlkur á 4 mánuðum. Ekki slæmt.

Þar sem búið er að nefna hinar þrjár þá er þetta víst síðasti séns á að fá litla nöfnu ;) (á þessu ári).

Ég heyrði það alveg hvað hún er falleg í gegnum símann áðan, mamman rétt náði að stynja “Það er stelpa” og “Hún er svo sæt” svo byrjaði skvísan að orga og ég væntanlega sett heimsmet í því að tala við splúnku nýjan einstakling í síma.

Úff hvað ég á erfitt með að halda í mér að hlaupa ekki bara upp á fæðingardeild núna og sjá hana. Skrík, ég er svo rík.

September 1, 2008

0 af 3

Filed under: amstur dagsins — oskuskaktus @ 9:28 pm

Þegar ég var lítil ætlaði ég að verða drottning, sofa í brjóstahaldara og keyra um á rauðum Bronco með gulum blómum.

Ég verð víst seint Drottning úr þessu, þykir óþægilegt að sofa í brjóstahöldum og langar ekkert að borga eldsneyti ofaní vélina á gömlum Bronco.

Drottning i brjostahaldara ad keyra Bronco