October 29, 2008

Dansaðu við mig

Filed under: amstur dagsins, tilkynningar — oskuskaktus @ 3:46 pm

Dásamlegt verk eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Backmann

Ég mæli með því og veit að það er kreppu tilboð á næstu sýningu.

 

Fullt af upplýsingum hér <-

October 20, 2008

Oldschool eldamennska…

Filed under: amstur dagsins — oskuskaktus @ 8:19 pm

Undanfarið hef ég farið offari í eldhúsinu, töfrað fram dýrindis krásir sem ég sjaldan nenni að galdra, lært nýtt og jú eldað það sem kallast á góðri íslensku “Hefðbundin Óskar eldamennska”. Ástæðan fyrir þessum endalausa dugnaði í eldhúsinu er einföld, það borðar einhver matinn annar en ég og hundurinn. Offorsið í eldamennskunni hefur verið þvílíkt að fréttasjúkustu menn eru farnir að “refresha” (isl. hressa við) statusinn minn á Facebook samtýmis fréttaveitunni mbl/visir.

En í kvöld er það “endurreisn gamalla gilda” minn uppáhalds uppáhalds réttur af öllum mínum uppáhalds réttum. Þennan rétt hef ég í slíkum hávegum að á tuttugasta og fyrsta afmælisdaginn minn bauð ég mínum bestustu vinum upp á þessar kræsingar. Ég gleymi aldrei andlitinu á kærasta einnar úr vinkonu hópnum þegar gúmulaðið var borið á borð.

“Soðnar Kjötfarsbollur og Hvítkál”

 

*Vegna ítrekaðs miskilnings skal áréttað að ofurkvenndið í síðustufærslu er klætt götóttri nærbrók á andlitinu.

October 8, 2008

Deginum ljósara!

Filed under: tilkynningar — oskuskaktus @ 10:26 pm

Það sem uppá hefur vanntað í íslenskuefnahagslífi undan gengna sólarhringa.

NÝTT AFL!

Ofurkvenndi til að rétta af fjárhaginn…

Ég kynni til leiks…

Tah dahhhhh (trommusóló)

October 7, 2008

Beygja kreppa sundur saman!

Filed under: amstur dagsins — oskuskaktus @ 10:26 pm

Ég líka

Filed under: klúður — oskuskaktus @ 1:35 pm

Það eru allir að tala um kreppuna, eldsneytið, bannkana, ríkisstjórnina, hamstrana og sauðkindina.

Ég líka, ég skil ekki alveg hvað er að gerast, hvað er að gerast?

Já og gengið? Nú hef ég mikið gengið með dýrið og tínt upp kúk og sett í poka.

 

October 2, 2008

Bara svona til gamans

Filed under: ámynning — oskuskaktus @ 12:04 am

Svo ég gleymist ekki…

 

e h