December 31, 2008
Hjá Ósk var þetta hellst:
- Uppgötvaði að pósturinn hafði ákveðið að flytja mig úr landi að mér forspurðri.
- Komst að því að The North Face™ létu undan ofsóknum PETA svo að úlpan “mín” varð ókaupileg.
- Keypti mér HOLGA vél og eina Lomo svo að myndavélarnar mínar urðu sex.
- Krækti mér í portret á 67 km hraða.
- ÍSAFJÖRÐUR.
- Tjáningarfrelsi dó pínulítið.
- Ég prófaði að búa í einbýlishúsi í 108.
- Ræktaði kriddjurtir og jarðarber.
- Fjárfesti í háglans appelsínugulum reiðskjóta, BLIKI.
- Varð eldri.
- Varð Ömmusystir.
- Mætti í partí.
- Fekk verðlaun.
- Eignaðist tvær systurdætur á einu bretti svo sistkynabörnin mín eru orðin 15.
- Bar póst inn í Emstrur á leið minni upp í Strút.
- Lærði að hjóla á pinnahælum.
- Fór í sund.
- Kvaddi Ömmu í síðasta sinn.
- Synnti í sjó í fyrsta skipti, nakin.
- Málaði kvíta hesta á rautt píanó niðri í fjöru.
- Tók til í framtíðardraumunum.
- Lærði að “baka” ostaköku.
- Varð Guðmóðir fallegasta barns norðan Alpafjalla síðan ég var ljóshærð með krullur.
- Eldaði dýrindis kræsingar.
- Flutti heim í 101.
- Varð brjáluð út í ráðamenn og konur þjóðarinnar, BAVÍANAR!
- Átti 6 vikna rimmu við internetið.
- Eignaðist matvinnsluvél, með lítill matvinnsluvél innaní og djúsvél.

December 26, 2008
Búin að troða mig út af ÖLLU! Namm…
Svo lítur ekki út fyrir að slegið verði af á næstunni. Fekk þessa líka forláta matvinnsluvél með öllu, svo mikið öllu að henni fylgir einnig minni matvinnsluvél. Reyndu að toppa það!
Ég fekk gjafir líkt og ég væri enn eithvað krakka skrípi, á þetta ekki að fara minnkandi með aldrinum?
Takk allir
Sem betur fer fekk ég líka uppskriftir að hollum ávaxta og grænmetissöfum, svona til að rétta mig af eftir allt átið. Þessar uppskriftir hafa allar einhvursskonar markmið, lækna ýmsa hluti. Td: hægðatregðu, niðurgang, erfiðra hægða einkenni, þynnku, gigt, slæma sjón, morgun ógleði, afeitrun, megrun, þyngdaraukningu, fyrirtíðarspennu og svo mætti lengi telja.
Jónína Ben nú máttu fara að vara þig að ég fari ekki í samkeppni!!!
December 23, 2008
oskgunnlaugsdottir.com óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári (hné hné hné), með innilegri þökk fyrir samlestur á árinu sem er að líða.
Fh oskgunnlaugsdottir.com

Ósk Gunnlaugsdóttir
Ég rakst á nýlega tilkynningu frá Rafmagnsveitu Reykjavíkur, eru ekki öruglega allir með þetta á ískápnum?

December 22, 2008
Væri nær því sem ég hefði skrifað undir þessa mynd.
Dýrið er bara svo dannað að það skítur ekki fyrir framan myndavélar.

December 16, 2008
Nú fáum við myndir af kettlingum…

Ef það er þá ekki bara fokið nú þegar.
Þessir drulluhalar sem við kusum yfir okkur eru ekki alveg með öllum mjalla. Nú hef ég misst alla trú og ekki var hún nú eithvað til að tíunda fyrir.
Þessar auknu álögur á áfengi tóbak og eldsneyti, jú jú einhver verður að borga lánið. En komm onn að halda því fram að þessar álögur eigi ekki eftir að auka verðbólguna sýnir bara við hverskonar fávisku er að stríða. Þessar álögur hækka verðtrygginguna á lánum beint því áfengi og tóbak eru inn í vísitölufjandanum.
Og (aldrei að byrja setningu á og, bull) að ætla að nota Alþjóðagjaldeyrissjóðs lánið til að verja íslensku krónuna er bara nákvæmlega það sama og að kveikja í dollurunum. Ja nema það þá þurfi að nota peningana í annað, væntanlega þá eithvað óskynsamlegra. (Þú ert í Pollíönuleik ef þú heldur að lánið veriði ósnert).
Ég ætla að gerast völuspá fyrir óskgunnlaugsdóttur.com og spá hallarbiltingu. Blóð mun rennna.
Upp með fallöxina, gapastokkana, heykvíslarnar og kyndlana.
Ég bíð mig fram sem sjálfboðaliða að hreynsa sótið af málverkunum í alþingishúsinu eftir byltinguna.
December 15, 2008
Húrra húrra jólasveinninn kom með internetið í skóinn minn í morgun.
En símanum tókst að tengja símanúmer ókunnugrar konu í skóinn minn í staðinn.
Hresst 
December 6, 2008
… við internetleysið er að það safnast upp LOL-kettirnir.

more animals
Við internetleysið er samt að þurfa að lesa fréttirnar af blaði daginn eftir að þær gerast.
Mér líður eins og ég búi í þróunarlandi.
Annars þá fæ ég Hollending á eftir, mun hjálpahonum við að ná tali af fólki, almennu jafnt sem ráðandi.
Hann borgar mér fyrir í Evrum, kash! Ég hef aldrei verið eins spennt að heyra fréttir af genginu og nú. Ef ég hefði internet líkt og aðrar siðmenntaðarkonur myndi ég rífresha sedlabanki.is á hverri mínútu og poppa.
Eina ástæðan fyrir því að ég ef ekki afhausað neinn er nýfundin trú mín á náunganum…
Annars er ég að verða vitstola af internetleysi og ef sá þessi einhver sem ræður einhverju talar ekki við mig á morgun þá verð ég að lýsa sjálfa mig ábyrgðarlausa eigin gjörða. En þó einungis þeirrar gjörðar.
Nú strandar internetið í pokann minn á fyrirtæki í eign annars internetfyrirtækis og lausn á þeirri dailu er ekki í augnsýn.
Deilan er:
INTERNETIÐ: “Ósk vill internet”
FYRIRTÆKIÐ: “En númerið tengist í 23″
INTERNETIÐ: “Já, svona er þetta í sambyggðum húsum í miðbænum, vinsamlegast tengja.”
FYRIRTÆKIÐ: “En númerið tengist í 23″
IINTERNETIÐ: “Vinsamlegast tengja Ósk í 21″
FYRIRTÆKIÐ: “En númerið tengist í 23″
INTERNETIÐ: “Ítrekun, setja tneginu Óskar í forgang, 21, tengist í húskassa 23.”
FYRIRTÆKIÐ: “En númerið tengist í 23″
INTERNETIÐ: “Það er samkvæmt plani og teikningum, vinsamlegast tengja Ósk fyrra númer xxxxxxx”
FYRIRTÆKIÐ: “En númerið tengist í 23″
INTERNETIÐ: “Tenging Óskar á númerið yyyyyyy tengist ásama stað og fyrranúmer xxxxxx í gegnum húskassa 23 en ekki 21″
FYRIRTÆKIÐ: “En númerið tengist í 23″
FYRIRTÆKIÐ: “En númerið tengist í 23″
FYRIRTÆKIÐ: “En númerið tengist í 23″
…
Þetta hefur tekið mánuð. Nú bíð ég spennt eftir símtali yfirmanns í fyrramálið… Hné hné hné!
Jeright, ég þarf að hringja og reyna að ná sambandi við þann millistjórnandann sem fekk málið mitt á sitt borð!
Bíddu hvað var verið að tala um kreppu?
*Tveimurdögum síðar sé ég internetið aftur og uppgötva að þessi færsla var ekki birt. ARGH!!!
Þrátt fyrir ítrekuð loforð um tengingar þá er enn internetlaust heima hjá mér. Þetta mál er farið að leggjast á sálina, þetta er orðið persónulegt.
Nú á eftir ætla ég að mæta á Austurvöll með riska mótmælaskilti…
“Internet í pokann minn. STRAX!”