January 23, 2009
Það eru allar líkur á því að það þurfi ekki að brína fallöxina, en það er búið að fúaverja gapastokkinn og setja WD40 í lásana, heikvíslarnar og kyndlarnir hafa kannski verið nóg.
Ég er hætt að vera reið yfir því að hafa verið lurkuð af óeirðalögreglunni. Kylfu förin kverfa eins og ríkisstjórnin, nú þarf bara að halda áfram að taka til, fyrsta stopp Seðlabannkinn.



January 22, 2009
Mótmælti eins og prúðri stúlku sæmir, reif fram rifjárnið og sleifina og skundaði á völl. Barði mitt rifjárn og var vel. Þótti ekki sæma lengur að mótmæla við þjóleikhús og setti af stað skrúðgögu niður á Austurvöll.

Þegar þar var komið sameinaðist ég við mína vini og barði mitt rifjárn, um 8 metra frá skjölduðum lögvörðum, hrópaði slagyrði sem “vanhæf ríkisstjórn”, “kostningar” og “þetta eru ekki ólögleg mótmæli”. Ég var nógu fjærri til að fá ekki á mig piparúða, sem lögreglumenn virtust fara sparlega með. (Ætli það sé vesen að leisa úðan úr tollinum sökum gjaldeyrishafta? Ekki nauðsynjar?)
Ég stóð við rót lítillar brekku, ef brekku skildi kalla, þegar lögreglan ákveður að rýma svæðið. Ég snýst við og byrja að fóta mig upp brekkuna, það er flughált þó fætur mótmælenda séu búnir að bræða klakann að hluta. Ég næ að fóta mig upp brekkuna og þá tekur við um meters þverhnýpi niður á bekk, þarna er kominn sundgleraugaður maður að reyna að hjálpa mér, ég verð að hrista hann af mér til að hrapa ekki niður þessa örfáu sentimetra, (ég gæti meitt mig. FNE!).
Lögreglu mennirnir reka skildina í bakið á mér og ég rétti upp hendur tilbúin að lúffa, láta handtaka mig fyrir þessi ólöglegu mótmæli. Hvað átti ég að gera, ein eftir og veggur framundan. Það er þarna sem ég fekk kylfu í lærið, fæ svo annað kylfuhögg framan á sama lærið, innan fótar. Ég er rekin upp að veggnum, grúfi mig að honum og í annað sinn lyfti höndum í uppgjöf, með rifjárnið í annari hendi og leifarnar af sleifinni í hinni. Ég býst við handtöku. Skjöldur í bakið. Ég er keyrð áfram utan í skeljasandsveggnum, rekin eins og kind sem ekki vill í sinn dilk.
Bonk, bonk, bonk hljóðið af lögregluskildinum í bakið á mér. Það þýtur að mér fólk, dragandi mig í burtu frá kylfu höggum lögreglunnar. Er ég brotin? Nei, sársaukinn er að linast en ég get samt ekki stigið í fótinn.
Marið er djúpt og þessar myndir sýna eingöngu loforð um bláa-svarta marbletti á morgun.



January 21, 2009
Út með köttinn
kvikindið er loðið eins og ljón
út með stjórnarköttinn
hann hefur unnið heljarmikið tjón.
(já,svona farðu nú að koma þér út, sjá þetta kvikindi, með
hnakk og beisli alþjóða gjaldeyrissjóðsins…)
Út með köttinn
hann er búinn að ét’ upp spariféð þitt
út með stjórnarköttinn
hann er búinn að borða sældarlífið mitt.
(sérðu þetta Geir? Ætlarðu ekki koma hérna og hjálpa
okkur… og taktu þarna dýralækninn eða hvað hann nú heitir,
með þér)
Út með köttinn
ég þoli ekki þetta skælda skott
út með stjórnarköttinn
hann er að ét’upp húsaskjólið flott.
(sjáið þið fólk hvernig hann er búinn að fara með húsið þitt!)
Út með köttinn
því hann á ekki fasta setu hér
út með stjórnarköttinn
hann er kominn inn í taugarnar á mér.
(jæja, þetta er nú alveg að koma! Ætlið þið ekki að hjálpa
okkur þarna Ingibjörg og Þorgerður…)
Út með köttinn
kvikindið er loðið eins og ljón
út með stjórnarköttinn
hann hefur unnið heljarmikið tjón.
(…þetta flón!)
Tók mér renderpásu og mótmælti, mótmælti sérstaklega því að vinir mínir hafi verið járnaðir og barðir með kylfum fyrir það eitt að sitja í almenningsgarði, og því að samstarfsfélagar hafi verið beittir piparúða fyrir að vilja ekki hætta að vinna vinnuna sína.
Svo auðvitað mótmælti ég því að vanhæfir gemlingar ætli sér að sitja sem fastast og sjá ekki út úr augunum fyrir eigin skít.
Var ég ein um það að heyra Geir játa það að vera búinn að moka dollurum á krónubálið?
Þetta ástand í dag hefur samt létt mér sársaukann sem fylgir þessum degi, söknuðinn sem nýstir svo inn að beini að ég held stundum að hann sé raunverulega líkamlegur sársauki.
January 14, 2009
Fekk tveggja daga frest til að raka á mér lappirnar áður en þær verða skilgreindar sem “fót-kettlingar” og farið verður í friðunar aðgerðir með tilheyrandi terrorisma.

January 12, 2009
Rusl pósturinn vann mig, það komst eitt stykki skínka inn um síuna. Hvernig komst sneiðin þangað?
Með því að nota míns eigins rafdressu! Snjallt?

January 8, 2009
“Sjálfstraustið býr í brjósti okkar, ekki brjóstunum á okkur.”
Var haft eftir Guðrúnu Helgadóttur, rithöfundi og fv. alþingismanni í Bókinni Konur eiga orðið allan ársins hring 2008.
Þetta er einn sá mesti sannleikur sem ég hef lesið, en í dag býr skoðun mín jafnt í brjóstinu mínu og á brjóstunum mínum.

Mikið er ég orðin þreitt á ástandinu, sérstaklega vitandi að það á bara eftir að versna. Nú hefur bæst ný umræða í haug kreppuumræðuefna. “Framlenging á frystingu bílalána”.
Hlandið er farið að kólna í skóm landsmanna. Engin lausn í augnsýn. Ráðamenn sitja sem fastast hlandblautir upp að hnjám. Allar líkur á að stóladansinn færist í partíð hinu megin við götuna. Engin svör að fá, allir benda á hvorn annan. Kver stal kökunni úr krúsinni ómar um salina, “ha! nei, ekki ég!”
Hverjir eru skilmálar IMF lánsins og hvað er búið að sóa mörgum hlössum af dollurum í íslensku krónuna?
January 5, 2009
Á næsta horni er gistiskýli fyrir útigangsmenn, róna. Þessir blessuðu menn ganga fram hjá húsinu mínu tvisvar á dag, þeir trufla mig ekki neitt. En húsið stendur alveg við gangstéttina, þannig að ég heyri allt sem fer fram hér fyrir utan í götunni. Menntaskóla krakkarnir að röllta í sjoppuna í frímó, mömmur að argast í krökkunum sínum, kærustu pör að rífast á leiðinni heim af barnum og það liggur ekki lágt hjá þeim rómurinn elsku rónunum.
Núna var einn að ganga framhjá syngjandi hástöfum, svo staðnæmdist hann fyrir utan gluggan hjá mér og kláraði lagið, hvort sem það var ætlað mér, eða hann hafi bara verið að belgja sig út af götumyndinni.
Það sem mér þótti fallegast við þetta er lagið sem hann söng “Heims um ból”.
Þessum manni hefur verið hlýtt í hjartanu.
VIÐAUKI: og nú gekk hann aftur framhjá hummandi lagið, mér er næstum hlýtt í hjartanu.
Hugmynd? Rónakórinn, hægt að pannta þá til að koma og syngja fyrir utan gluggana hjá fólki sem er illt í hjartanu. Spurning?
January 4, 2009
Það er langt síðan ég lennti í rökræðum um nýslendinga.