Þrjátíára og samt hress. Töff!!!

Þrjátíára og samt hress. Töff!!!

Úa: Ósk, afhverju þerf maður að deyja?
Ósk: hmm… Af því maður þarf að klára það sem maður byrjar á.
Og stelpan sátt.

Það fer ekki mikið fyrir mér hér þessa dagana, kosningarnar á morgun búnar að valda mér miklu hugarangri og ég sveiflast til frá degi til dags. Loka sveiflan verður svo á morgun og mun ég líklegast exa á ólíklegasta stað.
Aftur á móti er ég löngu búin að velja varalitinn og hælana fyrir ráðhúsið á morgun þannig að enginn þarf að örvænta.
Ætli það teljist sem ógildur seðill að merkja með varaþrykki í stað exsinns?

Ég sit og velti því fyrir mér hversu stór hluti íslensku þjóðarinnar er samsettur af hálfvitum?
Hvað kostar að leigja Gallup?
Hvað kostar að slátra kjúklingi?
Getur endalust verið til?
Hversu mörg blöð fara í meðal saleris ferð?
En í flugvél?