August 30, 2009
Bara fyrirbyggjandi aðgerðir að fólk deyji ekki drottnisínum að kíkja hingað inn.
Það er víst þannig að þegar önnur manneskja tekur sér bólfestu í líkama konu tekur manneskjan yfir heilann líka. Þið eruð svo heppin að ég geri mér grein fyrir þessu og er ekki búin að skrifa 20 svona færslur.
22 vilkur, vá ég er meira en hálfnuð. 20 vikna sónarinn kom vel út og var daman hin rólegasta yfir sýningunni. Bandaði aðeins höndum á móti þrýstingnum frá tækinu en var aðalega bara i því að kjammsa á legvatni og geispa. Gaman að sjá hana vakandi í þetta skiptið.
Hún er að verða 500 gr og 18 cm frá haus í sporð. Hún er farin að heyra og ég að finna meira fyrir því þegar hún er að bylta sér og pota.
Kannski tími sé kominn á að hefja tónlistarlegt uppeldi.
August 27, 2009
Það verður á allrar vörum í janúar að æðri máttarvöld að eigin vali hafi orðið til þess að útlitsgen beggja foreldra hafi verið víkjandi við getnað stúlku barnsins.

August 10, 2009
Ég held að ávexir hafi bragðgæði í hlutfalli við vesen til átu.
Mangó er til dæmis töluvert bragðbetra en bananar.
August 7, 2009
Það er svakaleg hlandfýla við vestur inngang Ráðhúsins. Bara svona FYI.
Alltaf má ég ekki neitt…
ekki reyktan eða grafinn silung
ekki sushi
ekki útlenska mygluosta
ekki hval
ekki hörpuskel
ekki lifrarkæfu nema bara spari
í dag er spari…
(brauð með lifrarkæfu, Dijon, súrar gúrkur og hindberjasulta)
August 4, 2009
Ég á það til að gleyma mér og skella uppúr yfir fréttatímanum, svo ranka ég við mér og man að þetta er raunveruleikinn. Nettur kvíði og vantrú heltekur mig í augnablik og svo skelli ég uppúr aftur og vellti fyrir mér hvenar þjóðin vakni og sjái hvaða farsi er í gangi.
Ég er farin út að blása sápukúlur.
