September 24, 2009

Stöðugleikasáttmáli?

Filed under: amstur dagsins — oskuskaktus @ 9:58 am

Hvað þýðir það eiginlega. Nú virðast allar forsendur þessa* sáttmála að bresta og hvað gerist þá? Ekki neitt?
Var þetta bara snuð í þjóðina?

*Stöðugleikasáttmáli ríkistjórnar og atvinnulífs?

September 18, 2009

Hressandi í morgunsárið

Filed under: amstur dagsins, klúður, pælingar, spurningar — oskuskaktus @ 2:10 pm

Vakna, opna mbl.is og halda að maður sé með martröð. Forsíðan uppfull af Icesave “fréttum” tekur þetta aldrei enda?

Þórsísinni fæddist lítill typpalingur í gærkvöldi á 38. viku, það er á mannamáli tveimur vikum fyrir settan dag en samt talin fullmeðganga, móður og barni heilsast vel og sá sem stefndi í að verða trölla barn er fæddur 14 merkur og 51 cm.

Annars als ótengt þá datt mér í hug nafn á stelpuna Æsleif… beygist líkt og Arnleif, ætli mannanafnanefnd samþykki þetta? Já eða kærastinn?

Hvernig gæti þetta klikkað?

September 6, 2009

Vandræðalegt

Filed under: klúður — oskuskaktus @ 10:02 pm

Eigum við ekki bara að skella stafsetningunni í síðustufærslu á ólétttuna.

Við sjáum kettling.

(athugið, myndin er stolin)

September 3, 2009

Lágmarks kurteysi

Filed under: amstur dagsins, tilkynningar — oskuskaktus @ 10:41 pm

Það á að stoppa fyrir óléttum konum á reiðhjóli, sérstaklega þegar karfan er fulll á leiðinni heim úr svínus, óléttar honur ættu að hafa forgang á almenningssalerni og unglingar eiga að bjóða óléttum konum fram fyrir sig í röðinni í ísbúðinni.