October 26, 2009

Og þá var kátt í höllinni…

Filed under: amstur dagsins, tilkynningar, uppgötvanir — oskuskaktus @ 10:04 am

Dansi dansi dans, bless bless McDonalds éttu það sem úti frís, dansi dansi dans!

Ég þarf ekki að kvíða rifrildum við ófædda dóttur mína um það að amerískt plast jukk sé ekki matur, ég þarf ekki að banna Mömmu að láta McDonalsd jukk eftir gullinu eins og hún kallar hana í dag.

Er að hugsa um að fara og ná mér í eitt stykki og grafa, bara svo ég geti dansað á gröf vörumerkisins.

Ég óska Lyst Ehf. til hamingju og góðs rekstrar undir nýju vörumerki og með íslensku hráefni.

October 23, 2009

Á fóninum

Filed under: amstur dagsins — oskuskaktus @ 3:51 pm

1. There is a light that never goes out - The Queen is Dead- The smiths
Rómantískasti texti níundaáratugarins.

2. Crimson & Clover - I Love Rock and Roll - Joan Jett and the Blackhearts
Dásamleg ábreiða frá 1981 á lag þeirra Tommy James and the Shondells

3. Some Velvet morning - Movin’ With Nancy - Lee Hazlewood and Nancy Sinatra
Skynörvandi popplag frá sjöunda áratug síustualdar, myndbandið hreynt augna konfekt.

October 6, 2009

Líkamsrækt

Filed under: amstur dagsins — oskuskaktus @ 3:04 pm

Ég byrjaði í nýrri líkamsrækt í dag, mér var tilkynnt eftir tímann að það væri fylgst með fólki og skróparar úthrópaðir. Ætli þetta sé nýji heitapottavinur minn?

Tvisvar í viku er sundleikfimi með eldriborgurunum í Vesturbæjarlauginni ég ætla að halda áfram að mæta.

Sá að það er eithvað trend í gangi með sundhettur, spurning um að splæsa í eina fallega upphleypta og díla svo við seglagerðina um stærri bol og fá hann þá kanski í stíl við hettuna. Sundbola far fekk nýja merkingu í dag þegar ég plokkaði utan af mér bolinn og eftir sátu gljúfur í bumbunni á mér eftir saumana í efninu.

October 3, 2009

Elsa - risaeðlan

Filed under: amstur dagsins, pælingar, tilkynningar, uppgötvanir — oskuskaktus @ 1:56 pm

Út er komin bókin Á mannamáli - leiðarvísir að réttlæti eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur.

Þetta er merkileg bók og ég segi það þó svo að ég sé ekki búin að graðka hana alla í mig og búist við því að þurfa að taka hana inn í skömtum. Ég bara verð svo reið.

Það er ekkert leyndarmál að Þórdís er ein af mínum bestustu og það að lesa þessa bók minnir mig á djók sem gekk okkar á mili fyrir nokkrum árum. Þórdís ætlaði að eignast risaeðlubarn og átti ég að halda á eðlunni undir skírn. Augljóslega hef ég ekki burði til þess að burðast um með risaeðlur í fanginu, jafnvel þó þær séu fallegir risaeðluungar og vilji ekkert illt, svo ég hannaði og teiknaði titanium stuðningsgrind sem myndi gera mér kleyft að bera ungann og gaf Þórdísi myndina.

Nú þarf ég að draga fram stuðningsgrindina því bókin er full af risaeðlum sem þarf að slátra.