Mín sko fúl út í internetið!
Ég hjólaði í mæðraskoðurn í dag komin 38 vikur sléttar -8°C, bara 14 dagar eftir í settan dag!
Þetta tilkynnti ég samviskusamlega á Facebook og bjóst við því að fá ofurkonuverðlaunin og skrúðgöngu um hverfið borna í gullstól og með lúðrasveit og jafnvel eldgleypum en nei hei!
Jæja ætla ekki að búast við neinum já-kór hérna frekar, farin að hringja í heimsmetabókina… og svo heyrði ég í vælubílnum koma í hlað.
Gleðileg jól og yljið ykkur við þessa krúttilegu mynd, virkar eins og heitt súkkulaði með rjóma. Mmmm..


