Ég byrjaði í nýrri líkamsrækt í dag, mér var tilkynnt eftir tímann að það væri fylgst með fólki og skróparar úthrópaðir. Ætli þetta sé nýji heitapottavinur minn?
Tvisvar í viku er sundleikfimi með eldriborgurunum í Vesturbæjarlauginni ég ætla að halda áfram að mæta.
Sá að það er eithvað trend í gangi með sundhettur, spurning um að splæsa í eina fallega upphleypta og díla svo við seglagerðina um stærri bol og fá hann þá kanski í stíl við hettuna. Sundbola far fekk nýja merkingu í dag þegar ég plokkaði utan af mér bolinn og eftir sátu gljúfur í bumbunni á mér eftir saumana í efninu.

Flott sundföt!
Comment by baun — October 7, 2009 @ 7:13 pm
Takk takk þetta er myndin sem ég sendi seglagrðinni til að sayma eftir
Comment by oskuskaktus — October 8, 2009 @ 10:29 am
Doppur eru svo dúlló:)
Comment by baun — October 9, 2009 @ 8:41 pm