Mín sko fúl út í internetið!
Ég hjólaði í mæðraskoðurn í dag komin 38 vikur sléttar -8°C, bara 14 dagar eftir í settan dag!
Þetta tilkynnti ég samviskusamlega á Facebook og bjóst við því að fá ofurkonuverðlaunin og skrúðgöngu um hverfið borna í gullstól og með lúðrasveit og jafnvel eldgleypum en nei hei!
Jæja ætla ekki að búast við neinum já-kór hérna frekar, farin að hringja í heimsmetabókina… og svo heyrði ég í vælubílnum koma í hlað.
Gleðileg jól og yljið ykkur við þessa krúttilegu mynd, virkar eins og heitt súkkulaði með rjóma. Mmmm..

Haha, laun heimsins eru vanþakklæti. Gleðileg jól í bæinn þinn, bið að heilsa kallinum:)
Comment by baun — December 23, 2009 @ 10:19 pm
Takk fyrir kæra baun, verst hvað það er erfitt að skipta vanþakklætinu í bankanum
Gleðileg jól og ár.
Comment by oskuskaktus — January 1, 2010 @ 12:45 pm