Um

Þegar Ósk Gunnlaugsdóttir fæddist í Reykjavík anno 1979 kváðu sjáendur að þar flygi orðspor Íslands sem leiðinlegri afturbataeyju á hjara veraldar senn út um gluggann. 

Síðar tók hún Kvikmyndaskóla Íslands með stormi og útskrifaðist þaðan 19. febrúar 2005, með hæstu einkunn og verðlaun fyrir þjóðfélagsádeiluna Eada Brila.

Ósk hefur starfað við kvikmyndagerð frá árinu 2004. Hún vann sér góðan orðstír við myndirnar Bjólfskviðu og Reiði Guðanna, gerði myndbandsverk fyrir leikritið Hungur er sett var upp í Borgarleikhúsinu 2006 og hefur komið að gerð ýmisra sjónvarpsþátta. Hún hefur unnið slatta við auglýsingagerð og sýndi síðast eigin kvikverk á Sequences 2007.

Ósk býr ein í 101 Reykjavík sökum arfaslaks smekks á karlmönnum og reynir með öllum tiltækum ráðum og endalausum sjarma að stökkbreyta gildum og viðmiðum samfélagsins.