Þegar Ósk Gunnlaugsdóttir fæddist í Reykjavík anno 1979 kváðu sjáendur að þar flygi orðspor Íslands sem leiðinlegri afturbataeyju á hjara veraldar senn út um gluggann.
Síðar tók hún Kvikmyndaskóla Íslands með stormi og útskrifaðist þaðan 19. febrúar 2005, með hæstu einkunn og verðlaun fyrir þjóðfélagsádeiluna Eada Brila.
Ósk hefur starfað við kvikmyndagerð frá árinu 2004. Hún vann sér góðan orðstír við myndirnar Bjólfskviðu og Reiði Guðanna, gerði myndbandsverk fyrir leikritið Hungur er sett var upp í Borgarleikhúsinu 2006 og hefur komið að gerð ýmisra sjónvarpsþátta. Hún hefur unnið slatta við auglýsingagerð og sýndi síðast eigin kvikverk á Sequences 2007.
Ósk býr ein í 101 Reykjavík sökum arfaslaks smekks á karlmönnum og reynir með öllum tiltækum ráðum og endalausum sjarma að stökkbreyta gildum og viðmiðum samfélagsins
|
When Ósk Gunnlaugsdóttir gave her first (but far from last) cry of battle in 1979 the shamans of the north sensed a first whiff of the change that was about to shake the islands conservative reputation asunder.
After taking the Icelandic Filmschool by storm and clearing out with highest marks and a price for her Eada Brila, a thrilling critique on society, she went on to build a raucous reputation in a variety of mediums.
Her CV in film includes Beowolf and Grendel and Wrath of the gods, she has worked on numerous adverts, made videoart for theatre and has been associated with a few tv-shows. Her more personal artwork was to be seen at the last Sequences, a growing artvideo-festival in Reykjavik.
She currently lives alone in 101 Reykjavik due to her terrible taste in men and has wild ideas about escaping the boundaries of rational everyday life. |